Virðisaukaskattur
Sérfræðiþjónusta á öllum sviðum virðisaukaskatts, byggð á áralangri reynslu af starfi hjá Skattinum.
Persónuleg, skýr og traust lögfræðiþjónusta fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.
Velkomin
Fagrabjarg ehf. veitir faglega og trausta lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Vanti þig persónulega lögfræðiþjónustu, meðal annars við að svara skattyfirvöldum eða eiga í samskiptum við önnur stjórnvöld vegna málsmeðferðar og stjórnsýslu, ertu á réttum stað.
„Hvert mál á skilið vandaða yfirferð og persónulega nálgun.“
Þjónusta
Ég tek á málum af nákvæmni og skilningi á aðstæðum hvers viðskiptavinar, allt frá einföldum fyrirspurnum til flóknari stjórnsýslumála.
Sérfræðiþjónusta á öllum sviðum virðisaukaskatts, byggð á áralangri reynslu af starfi hjá Skattinum.
Aðstoð við samskipti, málsmeðferð og athugun á því hvort farið hafi verið að reglum stjórnsýsluréttar.
Ráðgjöf um réttindi og aðstoð við umsóknir til Skattsins og annarra stjórnvalda.
Ég veiti sérfræðiþjónustu varðandi hvaðeina sem varðar virðisaukaskatt. Eftir áralangt starf hjá Skattinum hef ég reynslu af öllum sviðum virðisaukaskatts.
Fleiri svið
Ég get aðstoðað þig við að kanna hvaða rétt þú hefur í þessum málaflokki. Algengur misskilningur er að lögheimili ráði öllu þegar kemur að þessum greiðslum, en reyndin er önnur þó það sé meginreglan. Heyrðu í mér ef þú telur að þér sé brotið með synjun á greiðslu eða hvað eina sem varðar meðlag eða barnabætur.
Þurfir þú að eiga í samskiptum við önnur stjórnvöld en skattyfirvöld eða þarft að eiga við stjórnsýslu að hvaða leyti sem er get ég aðstoðað við það. Ég fer yfir málið og skoða hvort stjórnvald hafi farið að stjórnsýslulögunum við meðferð máls þíns.
Þarftu að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts eða annars konar umsókn til Skattsins? Heyrðu í mér ef þig vantar aðstoð við umsókn til stjórnvalds.
Um mig
Ég heiti Íris Erlingsdóttir og er löglærður sérfræðingur á öllum sviðum virðisaukaskatts. Ég er fjögurra barna móðir og bý í Hafnarfirði ásamt manni og börnum, tveimur hundum og einum heimilisketti.
Í kjölfar þess að ég ákvað að láta af störfum hjá Skattinum sumarið 2025, eftir rúm 16 ár í starfi hjá skattyfirvöldum, stofnaði ég Fagrabjarg ehf. ásamt mínum manni. Með stofnun félagsins vildi ég bjóða upp á persónulega, faglega og trausta lögfræðiþjónustu, aðallega á sviði virðisaukaskatts. Ég hef sérhæft mig í þeim málaflokki, en einnig í málum sem snúa að stjórnsýslu og samskiptum við stjórnvöld almennt, svo sem sýslumann og Tryggingastofnun.
Ég hóf nám við Háskólann í Reykjavík í lögfræði haustið 2005 og lauk BA-gráðu vorið 2008. Ég hélt beint áfram í meistaranám og útskrifaðist með ML í lögfræði vorið 2010.
Í námi mínu við Háskólann í Reykjavík sérhæfði ég mig í skattarétti og tók alla skattaréttaráfanga sem ég hafði möguleika á að taka. BA-ritgerðin mín var enn fremur á sviði tekjuskatts.
Í gegnum lífið hef ég persónulega átt í ýmsum samskiptum við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu, Tryggingastofnun og Skattinn vegna framfærslu barna eftir skilnað og þurft að rita allmörg bréf vegna þessara mála. Ég hef því þekkingu á þeim málaflokki og lært að margt sem samfélagið telur að sé greipt í stein er það ekki.
Vorið 2009 réði ég mig í sumarstarf á skattstofunni í Hafnarfirði hjá þáverandi Skattstjóra í Reykjanesumdæmi. Frá þeim tíma hef ég starfað hjá skattyfirvöldum, fyrst hjá skattstjóra, svo ríkisskattstjóra og nú síðast hjá Skattinum.
Við störf mín hjá skattyfirvöldum hef ég sérhæft mig í virðisaukaskatti. Ég starfaði sem hópstjóri yfir álagningu og endurgreiðslum í nokkur ár og síðar sem deildarstjóri virðisaukaskattsdeildar. Við lok starfstíma míns hjá Skattinum starfaði ég við fagmál og sérfræðiráðgjöf fyrir virðisaukaskattsdeild Skattsins.
Ég hef tekið þátt í flestum laga- og reglugerðarbreytingum sem varða virðisaukaskatt á meðan ég starfaði hjá Skattinum. Í störfum mínum hef ég unnið við lítil og stór mál í öllum málaflokkum virðisaukaskatts, komið að mörgum kærum til yfirskattanefndar og þurft að skoða hvort málsmeðferð hafi farið að stjórnsýslulögum.
Markmið Fagrabjargs
Markmið félagsins er að veita faglega og trausta lögfræðiþjónustu til einstaklinga og minni fyrirtækja – allt frá því að svara einföldum fyrirspurnum til flóknari mála, svo sem vinnslu kæra til æðra stjórnvalds.
Hafðu samband
Vanti þig lögfræðiaðstoð við eitthvað af því sem ég býð upp á, sendu mér skilaboð og ég hef samband. Vanti þig aðstoð við annað, endilega heyrðu í mér og við skoðum hvort ég geti aðstoðað.
iris@fagrabjarg.is